Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 4. febrúar 2025 ásamt kæru nr. 20/2025, dags. 4. febrúar 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa frá 23. janúar 2025 um álagningu dagsekta vegna bílskýlis að Grundarlandi 22. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 7. mars 2025. Jafnframt er lagður fram bráðabirgðaúrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 24. mars 2025. Úrskurðarorð: Frestað er réttaráhrifum ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 23. janúar 2025, um beitningu dagsekta að fjárhæð 25.000 kr. á dag frá og með 24. janúar 2025.