Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 347
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 4. febrúar 2025 ásamt kæru nr. 20/2025, dags. 4. febrúar 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa frá 23. janúar 2025 um álagningu dagsekta vegna bílskýlis að Grundarlandi 22. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 7. mars 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 11. júní 2025. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfum kærenda um að felldar verði úr gildi ákvarðanir byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 22. ágúst 2024 um að krefjast þess að kærendur fjarlægi bílskýli á lóð þeirra að Grundarlandi 22 og frá 23. janúar 2025 um álagningu dagsekta að fjárhæð 25.000 kr.