Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 11 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 337
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 14. janúar 2025 ásamt kæru nr. 6/2025, dags. 13. janúar 2025, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar, dagsett 20. desember 2024, þar sem kröfu kæranda um stöðvun framkvæmda að Álfabakka 2A var synjað. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 21. janúar 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 11. febrúar 2025. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.