Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 4. febrúar 2025 ásamt kæru nr. 17/2025, dags. 31. janúar 2025, þar sem kærð er ákvörðun deildar afnota og eftirlits á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar um að aðhafast ekki frekar vegna skúrs á lóð Urðarbrunns 114 í Reykjavík. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 14. febrúar 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 10. apríl. 2025. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að felld verði úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 3. desember 2024, um að aðhafast ekki frekar með beitingu þvingunarúrræða vegna smáhýsis á lóð Urðarbrunns 114.