Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 4. febrúar 2025 ásamt kæru nr. 17/2025, dags. 31. janúar 2025, þar sem kærð er ákvörðun deildar afnota og eftirlits á umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar um að aðhafast ekki frekar vegna skúrs á lóð Urðarbrunns 114 í Reykjavík.