Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 28. mars 2025 ásamt kæru nr. 52/2025, dags. 27. mars 2025, þar sem kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar að koma fyrir tveimur lausum söfnunargámum ofanjarðar á skipulögðu grenndarsvæði um djúpgáma við Hrannarstíg. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 12. maí 2025. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 27. maí 2025. Úrskurðarorð: Kærumáli þessu er vísað frá úrskurðarnefndinni.