Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Gunnars Bjarnasonar ehf., dags. 20. desember 2024, um breytingu á deiliskipulagi Gufuness 1. áfanga vegna fjögurra lóða á reit A1. Í breytingunni sem lögð er til felst að sameina lóðirnar A1.1-A1.4, núverandi spennistöð verður færð inn á nýja lóð eða inn í núverandi hús á reit A1.2, byggingarreitur bílakjallara nær undir alla lóðina, heildarbyggingarmagn ofanjarðar helst óbreytt en byggingarmagn neðanjarðar eykst, íbúðir verða heimilaðar á öllum hæðum, en mögulegt verður að vera með atvinnustarfsemi á jarðhæð, og heimilt verður að gera þaksvalir ásamt því að öll bílastæði verða í bílakjallara og á móti hverju deilibílastæði verði hægt að falla frá 5 bílastæðum einkabíla, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdr. Praxis arkitektúr, dags. 19. desember 2024. Einnig er lagt fram samkomulag lóðarhafa og Reykjavíkurborgar, dags. 18. mars 2026. Tillagan var auglýst frá 15. maí 2026 til og með 26. júní 2026. Ábending Veitna barst.