Við birtingu fundargerðar afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 27. maí 2026 var umsögn skipulagsfulltrúa fyrir ofangreint mál lögð fram og samþykkt. Misfórst að setja inn í inngang umsagnarinnar tilvísun í dagsetningu og efni fyrirspurnarinnar og hefur það nú verið lagfært og dagsetning umsagnar uppfærð í 30. júní 2026. Engar efnislegar breytingar voru gerðar á umsögninni og rétt var vísað í dagsetningu og efni í fundargerð að öðru leiti.