Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Fulltrúi Flokks fólksins óskar upplýsinga um eftirfarandi atriði um mál vöruhússins í Álfabakka 2, Suður – Mjódd: Lýsingu á ákvarðanatökuferli málsins frá upphafi, Tímalínu málsins, frá upphafi til loka. Upplýsingar um regluverkið og framkvæmd þess, með áherslu á hvort farið hafi verið eftir gildandi lögum og reglum. Upplýsingar um eftirlitsferla, með sérstakri áherslu á hvernig staðið var að eftirliti við byggingu skemmunnar. Athugasemda íbúa og hvernig unnið var úr þeim athugasemdum. Einnig er spurt hvort umferðarmál hafi verið skoðuð í kringum byggingu vöruhússins, t.d. hvernig flutningum að og frá húsinu yrði háttað? Greinargerð fylgir fyrirspurn