Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Áheyrnarfulltrúi Flokks Fólksins leggur fram eftirfarandi fyrirspurn varðandi fyrirhugaða uppbyggingu húsnæðisbyggðar í Grafarvogi: Hvernig hefur samráði við íbúa í Grafarvogi verið háttað? Hvar er raunverulegt samráð? Borgin státar sig af íbúalýðræði í fjölmiðlum, en metfjöldi athugasemda í Skipulagsgátt og fjölmennasti íbúafundur í manna minnum benda til annars. Hefur Esja verið beðin um að vinna áfram tillögur að Sóleyjatúni? Hvernig er það eðlilegt þegar ekki hefur verið tekið ákvörðun um deiliskipulag? Esja arkitektar leggja til byggingu á ýmis konar almannarýmum? Hver verður rekstraraðili að þeim? sbr. býflugnabú, samkomuhús og smíðaverkstæði? Gengið á græn svæði: Telur borgin það forsvaranlegt að ganga á græn svæði þvert á viðvaranir sérfræðinga um heilsufarslegar afleiðingar og áhrif á líðan íbúa? Brot á fyrri loforðum: Árið 2003 var lofað að skilja eftir grænt útivistarsvæði á Sóleyjatúni. Hvað varð um það loforð? Af hverju hefur svæðið ekki verið gert að aðlaðandi útivistarsvæði? Kostnaðarmat vegna stofnlagna: Er borgin meðvitað um stofnlagnir undir Sóleyjatúni og þann kostnað sem fylgir flutningi þeirra ef áform um uppbyggingu verða að veruleika? Staða Sóleyjartúns: Hvar er málið statt í ferlinu? Öryggi barna: Hvernig á að tryggja öryggi skólabarna með framkvæmdum sem liggja þétt upp við einn fjölmennasta grunnskóla landsins? Einnig er spurt hvort hægt sé að réttlæta svo fá bílastæði miða við íbúðir í ljósi þess að víst má telja að bílastæðavandi muni skapa mögulega hættu fyrir gangandi vegfarendur? Notkun á húsnæði Isavia: Þegar Isavia flytur út úr húsnæðinu við túnið, er spurt hvort ekki verði þá skynsamlegt að nýta það sem félagsmiðstöð fyrir unglinga eða leikskóla? Þannig mætti nýta túnið betur sem útivistarsvæði og koma til móts við þarfir barna í hverfinu. Isavia húsið verður friðað á næstu 2-3 árum. Skuggavarp og áhrif á íbúa: Skuggavarp á Sóleyjatúni er þegar mikið og hefur áhrif á útsýni og sól í görðum íbúa hinum megin við götuna. Ætti ekki aðeins að leyfa lágreista byggð á svæðinu ef byggja á yfirhöfuð? Hvernig ætlar borgin að tryggja jafnvægi milli þróunar í miðborg og úthverfum? Af hverju þarf að vera sama þéttingarstefnan í úthverfum og í miðborginni? Íbúar hafa lýst sig andsnúna svo mikilli þéttingu vegna skuggavarps og umferðarþunga sem af henni leiðir. Upplýsingagjöf: Óskað er upplýsinga um af hverju íbúar hafa ekki verið upplýstir meira en raun ber vitni. Það er mat íbúa að upplýsingagjöf hafi verið léleg og vinnubrögð óskýr. Þetta kom berlega í ljós þegar ný tillaga að deiliskipulagi fyrir Mjódd var kynnt? Hvernig áttu íbúar að geta áttað sig á svona ferlum? Greinargerð fylgir fyrirspurn.