Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 6 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 337
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, að breytingu á deiliskipulagi Elliðaárdals vegna lóðar nr. 4 við Rafstöðvarveg, Toppstöðin. Í breytingunni sem lögð er til felst að skilgreind er lóð umhverfis Toppstöðina og gert ráð fyrir að byggingin standi áfram í stað þess að vera víkjandi, kvöð er sett á lóðina að tengistígur liggi í gegnum hana meðfram Elliðaár og skilgreindur er byggingarreitur (D1) umhverfis núverandi byggingu og innan hans er heimilt að viðhalda eða endurbyggja núverandi byggingu, samkvæmt uppdrætti Landslags, dags. 24. mars 2025. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Vísað til borgarráðs.