Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Freys Frostasonar, dags. 6. desember 2024, um nýtt deiliskipulag fyrir Ártúnshöfða, Svæði 7A sem staðsett er við Breiðhöfða 3-5. Í nýju deiliskipulagi er gert ráð fyrir íbúðum og valkvæðri atvinnustarfsæmi á jarðhæðum við Breiðhöfða, einnig er gert ráð fyrir varðveislu Fornalundar sem er gróðursælt útivistarsvæði í samræmi við kvöð um varðveislu hans, samkvæmt deiliskipulags- og skýringaruppdráttum THG arkitekta, dags. 7. janúar 2024. Einnig er lögð fram greinargerð og skilmálar fyrir húsbyggingar og mannvirki á lóð, dags. 7. janúar 2024, Húsakönnun, dags. í febrúar 2023, Hljóðvistarskýrsla Cowi, dags. 18. júní 2024, Samgöngumat Verkís, dags. 21. júní 2024, og Umhverfismatsskýrsla Verkís, dags. 15. ágúst 2024.