Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Óskað er upplýsinga um hvort ákveðið hafi verið að byggja bryggju yfir leirur og gera göngustíg út í sjó þar sem á að vera útsýnispallur í miðju leirunnar, í samræmi við tillögu FOJAB arkitekta. Hafa áhrif þessarar tillögu á náttúru og fuglalíf verið könnuð og ef svo er hver er niðurstaða þess? Greinargerð fylgir fyrirspurn.