Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um bryggju yfir leirur, sbr. 34. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 13. nóvember 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 28. nóvember 2024.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Óskað var upplýsinga um hvort ákveðið hafi verið að byggja bryggju yfir leirur og gera göngustíg út í sjó þar sem á að vera útsýnispallur í miðju leirunnar, í samræmi við tillögu FOJAB arkitekta. Hafa áhrif þessarar tillögu á náttúru og fuglalíf verið könnuð og ef svo er hver er niðurstaða þess? Í svari er sagt að ,,í tillögugerðinni verður lífríki Grafarvogs alltaf sett í forgrunn”. Hvað þýðir líklegt? Hvernig meta þeir lífríki í forgrunni og út frá hvaða forsendum? Hugmyndir um útsýnisbryggju yfir leirur Grafarvogsins eru fjarri því að tekið sé tillit til lífríkisins. Slíkum hugmyndum á að hafna strax. Þær eiga ekki að koma til álita. Aðilar eins og Náttúrufræðistofnun og Landvernd hafa lýst yfir áhyggjum sínum af þessari tillögu og m.a. sagt: „Sú aðalskipulagsbreyting sem liggur hér til umsagnar mun að óbreyttu ganga gegn verndargildi svæðisins.“. Er slíkt m.a. byggt á tillögu FOJAB arkitekta, líklega vegna þess stíls og arkitektúrs sem þar er sýndur. Í þeirri tillögu er verið að setja göngubrú út í leirurnar. Er það von FF að farið verði vel yfir athugasemdir Náttúrufræðistofnunar sem eru vel unnar og benda á hvað þetta er viðkvæmt svæði.