Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 326
Annað
‹ 33
34
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins: Nú hefur borgarstjóri sagt að það verði að þétta Grafarvog og byggja Keldnalandið vegna þess að það vanti byggingarland. Spurt er, ef það vantar svona mikið land til byggingar. Af hverju er dregið að byggja upp á Kjalarnesi þar sem að íbúar vilja meiri byggð til að byggja upp innviði? Af hverju er ekki byggt meira í Úlfarsárdal þar sem þar er nægt rými? Af hverju ekki að byggja Geldingarnesið? Flokkur fólksins hafnar því að það þurfi að ofurþétta Grafarvog á sama tíma og margir aðrir kostir eru í stöðunni til að auka byggingarmagn. Það er mat fulltrúa Flokks fólksins að gengið sé of langt í þessari þéttingu.