Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 332
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um bryggju yfir leirur í Grafarvogi, sbr. 35. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 13. nóvember 2024. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa dags. 9. janúar 2025.
Svar

Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Fulltrúi Flokks fólksins þakkar svarið en vill um leið minna á að þétting byggðar þarf líka að eiga sér stað í meira mæli í þeim hverfum borgarinnar þar sem innviðir eru til staðar ásamt óskum íbúa um meiri byggð eins og á Kjalarnesi - í stað þess að halda áfram að þétta byggð á þeim svæðum þar sem mikil uppbygging hefur nú þegar átt sér stað. Það er ekkert því til fyrirstöðu að skoða þéttingu á þeim svæðum seinna. Það þarf að hugsa þetta í stærra samhengi og huga að aukinni umferð og álagi á innviði sem óhjákvæmilega fylgir þéttingu byggðar í fjölmennari hverfum. Lagning Sundabrautar ásamt uppbyggingu nýrra hverfa í Keldnaholti og á Kjalar- og Geldinganesi er það sem Höfuðborgarsvæðið þarf virkilega á að halda þegar litið er til þéttingu byggðar - burtséð frá því hvenær borgarlínan verður til. Það er hægt að skipuleggja hverfi þrátt fyrir að borgarlínan sé komin eða ekki. Í því samhengi vill fulltrúinn minna á að nú þegar er smærri útgáfa af borgarlínu í gangi á höfuðborgarsvæðinu - undir nafninu Strætó Bs.