Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 325
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. í nóvember 2024, vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi Elliðaárvogs fyrir Geirsnef. Svæðið afmarkast af skipulagsmörkum í gildandi skipulagi í austri og suðri. Það er frá Elliðaá í austri og Vesturlandsvegi í suðri. Að skipulagsmörkum Vogabyggðar 5 í norðvestri og að skipulagsmörkum Vesturlandsvegar, Knarrarvogar og Vogabyggðar 3. Tilgangur deiliskipulagsvinnunnar er að koma á skipulagi á Geirsnefið sem fjölbreyttu útivistarsvæði. Lagt er til að lýsingin verði kynnt og leitað umsagna þeirra aðila sem taldir eru upp í henni.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, hverfisráði og íbúasamtökum, Veitna ohf., Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, Veiðifélags Elliðavatns, Stangveiðifélags Reykjavíkur, Íþróttafélaginu Þrótti, Dýraþjónustu Reykjavíkur, Félagi ábyrgra hundaeigenda og einnig kynna hana fyrir almenningi.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Tekið er undir að Geirsnef er sífellt að verða mikilvægara útivistarsvæði fyrir íbúa. Gert er ráð fyrir að Geirsnef verði borgargarður. Styrkja á náttúru, landslag og útivistarsvæði í borginni. Hér er þó verið að skerða útivistarsvæði hunda og er það miður. Hér vantar samráð og má búast við miklum mótmælum í þessu sambandi, skiljanlega. Hér kemur einnig, sem oft áður þessi sérkenna túlkun skipulagsyfirvalda á hugtakinu líffræðilegum fjölbreytileika: En sagt er : ,,Breytingin verður einnig í samræmi við stefnu borgarinnar um líffræðilegan fjölbreytileika, þar sem lögð verður áhersla á náttúrulegt yfirbragð og eflingu búsvæða”. Þetta hugtak á ekki við einstaka smábletti eins og skipulagsyfirvöld í Reykjavík vilja telja okkur trú um en sífellt tal um slíkt veikir þetta mikilvæga hugtak. En líffræðilegur fjölbreytileiki er eftir því sem fulltrúi Flokks fólksins skilur hugtak sem lýsir breytileika vistkerfa (náttúruauðs), tegundum og gena í heiminum eða á ákveðnu búsvæði, en ekki einstökum smáblettum eða beðum.