Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju umsókn Sigrúnar Sumarliðadóttur, dags. 6. mars 2024, ásamt bréfi hönnuðar, dags. 5. mars 2024, um gerð nýs deiliskipulags fyrir syðri hluta jarðarinnar Hrafnhóla á Kjalarnesi. Tilgangur deiliskipulags er að styrkja búrekstur á jörðinni þar sem tvinnað verður saman fjölbreyttum en hófsömum landbúnaði, gistingu, heilsutengdri þjónustu og útivist, samkvæmt skipulagslýsingu Studio Bua, dags. 1. júlí 2024. Einnig er lagt fram teikningasett Studio Bua, dags. 19. janúar 2024 og fornleifaskráning Fornleifastofnunar Íslands, dags. árið 2012. Lýsingin var kynnt frá 29. ágúst 2024 til og með 30. september 2024. Athugasemdir og umsagnir bárust. Athugasemdir og umsagnir vegna skipulagslýsingu kynntar.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Í sjálfu sér ætti borgin ekki að amast við því að jörðin, Kjalarnes, Hrafnhólar sér nýtt með arðbærum hætti en gæta má nokkurra þversagna í meðfylgjandi gögnum. Í skýrslunni frá Fornleifastofnun er lýst að jörðin hentar ekki til búskapar sbr. segir: ”Fornleifar í túni teljast í hættu vegna þess umróts sem fylgir ábúð og búskap og minjastaðir sem eru á svæði þar sem framtíðar landnotkun er óráðin. Í stórhættu teljast minjastaðir þar sem miklar líkur teljast á að stöðum kunni að verða raskað vegna áætlaðs eða fyrirsjáanlegs umróts”. Einnig kemur fram að jörðin sem slík henti illa til hefðbundins búskapar. Í núgildandi aðalskipulagi Reykjavíkur hins vegar er land Hrafnhóla skilgreint sem landbúnaðarsvæði L1, opin svæði, OP 28. Þar segir meðal annars: “Jafnframt er það markmið aðalskipulagsins að skapa fjölbreytta búsetukosti á landbúnaðarsvæðunum án þess þó að það leiði til þéttbýlisþróunar. Á landbúnaðarsvæðum skal fyrst og fremst gera ráð fyrir íbúðarbyggingum sem tengjast búrekstri á viðkomandi.“ Fulltrúi Flokks fólksins telur að þarna sé því nokkur þversögn því að ætlunin sé að styrkja búrekstur þrátt fyrir að ábúð og búskapur raskar mögulega fornleifum í túni.