Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 331
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, skipulagsfulltrúa, dags. í nóvember 2024, vegna fyrirhugaðrar breytingar á deiliskipulagi Elliðaárvogs fyrir Geirsnef. Svæðið afmarkast af skipulagsmörkum í gildandi skipulagi í austri og suðri. Það er frá Elliðaá í austri og Vesturlandsvegi í suðri. Að skipulagsmörkum Vogabyggðar 5 í norðvestri og að skipulagsmörkum Vesturlandsvegar, Knarrarvogar og Vogabyggðar 3. Tilgangur deiliskipulagsvinnunnar er að koma á skipulagi á Geirsnefið sem fjölbreyttu útivistarsvæði. Lýsingin var kynnt frá 14. nóvember 2024 til og með 5. desember 2024. Athugasemdir og umsagnir bárust. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dag. 16. janúar 2025. Athugasemdir kynntar Fulltrúar Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun: Athugasemdir um skipulagslýsingu leggja mikla áherslu á gæði svæðisins sem útivistarsvæðis fyrir hunda og hundaeigendur. Dýraþjónusta Reykjavíkur býður fram ráðgjöf við útfærslu til frambúðar. Þessar athugasemdir ber að taka alvarlega og halda í lausagöngusvæði fyrir hunda og jafnvel hafa þarna flottan almenningsgarð með heimild fyrir lausagöngu. Dýr eru hluti af borgarlífinu og síðustu ár hefur Reykjavíkurborg stigið skref í þá átt að huga betur að þörfum dýra og dýraeigenda og bjóða dýr velkomin í borginni.