Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 345
Samþykkt
Fyrirspurn
Lagt fram bréf umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 28. maí 2025, þar sem óskað er eftir til að umhverfis- og skipulagsráð samþykki að veita heimild fyrir áframhaldandi undirbúningi, verkhönnun og gerð útboðsgagna vegna gatna í Hlíðunum, til samræmis við meðfylgjandi forhönnun.
Svar

Samþykkt með atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar greiða atkvæði gegn tillögunni.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Framsóknarflokksins:
Framsókn leggst gegn breytingum á stæðum og götumynstri við Drápuhlíð – Lönguhlíð. Þar sem fyrirhugað er að breyta legu stæða í Drápuhlíð og fækka stæðum við Lönguhlíð. Mikil óánægja íbúa er í hverfinu vegna þessarar breytinga og kvarta þeir yfir litlu samráði þrátt fyrir yfirlýsingu um annað frá borgaryfirvöldum. Stofnað hefur verið til undirskriftasöfnunar af hálfu íbúa til að mótmæla fyrirhuguðum breytingum.