Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins:
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar þakkar íbúum í Hlíðunum fyrir góða þátttöku í vinnustofu um framtíðarútfærslu Drápuhlíðar. Niðurstöður vinnustofunnar sýna glögglega mikilvægi þess að hafa íbúa með í ráðum þegar breytingar eru fyrirhugaðar í þeirra nærumhverfi. Framundan eru umfangsmiklar framkvæmdir Veitna í götunni sem skapa jafnframt tækifæri til að endurnýja og bæta göturýmið. Það er ánægjulegt að sjá hversu skýr samstaða myndaðist meðal þátttakenda um að halda í það sem vel hefur reynst, ekki síst núverandi fyrirkomulag skástæða og fjölda bílastæða, en leggja jafnframt áherslu á bætt umferðaröryggi, gangstéttir, lýsingu og aðgengi. Meirihlutinn leggur áherslu á að niðurstöður vinnustofunnar verði lagðar til grundvallar áframhaldandi hönnun götunnar í takt við það fjármagn sem liggur til grundvalla framkvæmdanna og að áfram verði haft gott samráð við íbúa. Markmiðið er að nýta framkvæmdirnar til að bæta umhverfi og þjónustu við íbúa, með lausnum sem taka mið af raunverulegum þörfum þeirra og njóta stuðnings í hverfinu.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Samfylkingarinnar:
Fulltrúar Samfylkingarinnar fagna því að efnt hafi verið til vinnustofu með íbúum um framtíðarhönnun Drápuhlíðar. Slíkt samráð er til fyrirmyndar og mikilvægt að sjónarmið íbúa hafi raunveruleg áhrif á endanlega útfærslu. Niðurstöðurnar sýna jafnframt hversu vandasamt getur verið að samræma ólíka hagsmuni. Íbúar kalla eftir breiðari og betri gangstéttum, auknu umferðaröryggi, betri lýsingu, hleðsluinnviði og lægri umferðarhraða, en vilja jafnframt halda í núverandi bílastæði. Bílastæðatalningar sýna enda mjög mikla nýtingu á kvöldin og því þarf að fara varlega í fækkun stæða við núverandi aðstæður. Við áframhaldandi hönnun Drápuhlíðar þarf að leita bestu mögulegu lausnar með hliðsjón af óskum íbúa og almannahagsmunum. Þegar götur eru endurnýjaðar til næstu áratuga verður að horfa til heildarmyndarinnar. Öryggi og aðgengi allra vegfarenda vega þar þyngst, en ásýnd og gæði göturýmisins skipta einnig miklu máli. Markmið okkar á ávallt að vera að skapa fallegt, öruggt og gott borgarumhverfi fyrir alla ferðamáta.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Vinstrisins:
Fulltrúi Vinstrisins lýsir ánægju með þá vinnu sem unnin hefur verið við skipulagsmál Drápuhlíðar og útfærslu bílastæðamála þar. Vinnustofuformið sem nýtt var til að bjóða íbúum að koma að verkinu getur vafalítið orðið fyrirmynd að sambærilegri vinnu annars staðar og stuðlar að íbúalýðræði.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Sósíalistaflokks Íslands:
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokksins fagnar samráði við íbúa um breytingar á götum, bílastæðum og gangstéttum í Hlíðunum. Vinnustofa með íbúum var til fyrirmyndar og vonandi sést meira af slíku í framtíðinni.