Samþykkt með atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins gegn tveimur atkvæðum Sjálfstæðisflokksins. Fulltrúi Framsóknarflokksins situr hjá við afgreiðslu málsins.
Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins:
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggjast gegn almennu banni við lagningu ökutækja í Álakvísl. Með slíku banni verður enn aukið á þann bílastæðavanda sem nú þegar ríkir í götunni. Fyrirliggjandi tillaga felur ekki í sér neinar úrbætur fyrir íbúa við Álakvísl til að vega upp á móti fækkun bílastæða, t.d. með fjölgun bílastæða annars staðar í götunni eða í næsta nágrenni. Samkvæmt skoðanakönnun meðal íbúa Álakvíslar er yfirgnæfandi meirihluti þeirra á móti umræddu stöðubanni.