Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 325
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að fækkun bílastæða við Sólvallagötu fari í kynningu og samráð við íbúa , sbr. 17. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 9. október 2024. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 23. október 2024.
Svar

Tillögunni er vísað frá með vísan til umsagnar með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna. Fulltrúa Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði gegn frávísun.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Lagt var til að fyrirhuguð fækkun bílastæða við Sólvallagötu fari í kynningu og samráð við íbúa svæðisins. Í umsögn er hins vegar ekkert minnst á Sólvallagötu heldur aðeins ökutæki á nokkurra metra kafla við gatnamót Framnesvegar annars vegar og Ánanaustar hins vegar. Fulltrúi Flokks fólksins er hins vegar ekki sammála þessari umsögn skipulagsyfirvalda að ekki sé þörf á samráði eða kynningu. Samráð skaðar aldrei. Sjálfsagt er að sýna íbúum virðingu og hlusta á þeirra skoðanir. Annað sýnir hroka og yfirgang. Hér er verið að fela sig bak við reglur og þær notaðar sem afsökun til að tala ekki við íbúa. Það kann ekki góðri lukku að stýra.