Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 13. ágúst 2024 ásamt kæru nr. 87/2024, dags. 10. ágúst 2024, þar sem kærð er ákvörðun ákvörðun um útgáfu lokaúttektarvottorðs byggingarfulltrúa Reykjavíkur vegna Tangabryggju 13 – 15 sem gefið var út 18. júlí 2024. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 13. september 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 11. október 2024. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 18. júlí 2024 um að gefa út vottorð um lokaúttekt vegna Tangabryggju 13–15.