Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 325
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um umhverfismál, sbr. 35. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 11. janúar 2023. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 16. október 2024. Tillögunni er vísað frá með vísan til umsagnar með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna. Fulltrúa Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði gegn frávísun. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Flokkur fólksins lagði til að meirihlutinn taki saman þó að ekki væri nema einblöðung til að segja frá hvaða stærri verkefni borgin hefur farið í síðustu 3 árin sem þeir telja að hafi gagnast borgarbúum í umhverfismálum og hvað stendur til að gera næstu 2 árin. T.d. vantar yfirlit yfir hvað borgin hefur keypt marga rafbíla og hversu margir ganga fyrir jarðeldsneyti? Hver er áhersla á skógrækt? Hverju hafa stór verkefni skilað í umhverfismálum? Allt þetta er í raun á huldu fyrir borgarbúum. Tillögunni er hafnað sem er undarlegt. Það er mikilvægt að borgarbúar hafi upplýsingar um hvað hefur verið gert í þessum málum. Flokkur fólksins hefur lagt fram fjölda tillagna í þessum málaflokki sem var öllum hafnað. Sem dæmi lagði flokkurinn til að farið yrði í skógrækt í austur frá borginni og var þeirri tillögu einnig hafnað.