Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um fækkun bílastæða fyrir fatlað fólk, sbr. 27. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 2. október 2024. Einnig lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 23. desember 2024.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins óskað svara við fyrirspurnum um hver sé ástæða þess að stæðum fyrir fatlaða hefur fækkað svo mjög í miðborginni og hvort það sé stefna borgaryfirvalda að halda þessu áfram og loka alveg á fatlaða? Í svari er ekki tekið undir það að stæðum fyrir hreyfihamlaða í miðborginni hafi fækkað og að ekki sé stefna að fækka slíkum stæðum í miðborginni eða annars staðar í Reykjavík. Kannski er það ekki stefna borgarinnar að fækka stæðum en stæðum hefur þó engu að síður fækkað. Það er eiginlega staðfest í svari en þar segir” það liggja ekki fyrir upplýsingar um fjölda og þróun stæða fyrir hreyfihamlaða í borginni”. Það skýtur skökku við, þ.e. að borgin hafi ekki upplýsingar um fjölda og þróun stæða fyrir hreyfihamlaða í borginni. Fötluðu fólki fer ekki fækkandi í Reykjavíkurborg og þarf þess vegna að fjölga stæðum fyrir hreyfihamlað fólk mikið. Nokkur stæði í viðbót á ári duga skammt. Fatlað fólk er líka fólk sem langar að komast um borginna án stórfelldra vandræða. Stæðum hefur fækkað og stæðiskorthafar finna mikið fyrir því. Fatlað fólk hefur ekki mætt nægum skilningi hjá borginni þegar það hefur mótmælt þessari þróun.