Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um ferðavenjukönnun, sbr. sbr. 26. lið fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 27. nóvember 2024. Einnig er lagt fram svar deildarstjóra loftslagsmála, dags. 20. desember 2024.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins óskaði upplýsinga um hvað kostar að gera eitt stykki ferðavenjukönnun sem Gallup hefur framkvæmt fyrir Reykjavíkurborg á hverju ári í 16 ár? Fram kemur að kostnaður við ferðavenjukönnunina árið 2024 var 367.200 án VSK. Segir jafnframt í svari að könnunin er ein forsenda að því að Reykjavík varð Pilot borg og fékk 600.000 evra styrk (um 90 milljónir ISK) fyrir verkefnið „Þrætt í gegnum þrengslin“ (e. Piercing through the gridlocks) sem mun ná til september 2026. Styrkurinn verður m.a. nýttur til að greiða fyrir þessa ferðavenjukönnun. Ferðavenjukönnunin er því Reykjavík að kostnaðarlausu árin 2024 og 2025. Það er mat Flokks fólksins að þetta er allt gott og vel. Hins vegar eru niðurstöður þessara kannana afar keimlíkar frá ári til árs og mætti kannski þess vegna nota styrkinn í eitthvað bitastæðara. Það myndi vel nægja að gera þessar kannanir annað hvort ár. Fulltrúi Flokks fólksins hefur fylgst með þessum könnunum í á 7 ár og eins og áður segir, á þeim er varla nokkur marktækur munur milli ára. Fara á vel með fjármagn líka styrki.