Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um hraðamælingar, sbr. 32. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs 25. september 2024. Einnig lagt fram svar skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 23. desember 2024
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins óskaði eftir yfirliti og dæmum á m.a. hraðamælingum, brotið niður eftir farartækjum og samgöngumátum og hvernig segulmælingar af þessu tagi greini á milli farartækja og hvernig greina þær gangandi vegfarendur? Spurt var jafnframt um snjallljósastýringar. Af svari má dæma þá hefur þetta mál hafi ekki verið sett í forgang. Eins og vitað er hefur verið fjárfest í snjallljósastýrikerfi fyrir Höfðabakka sem er enn í kössum vegna fjárskorts, manneklu og þekkingarleysis. Hefði ekki verið nær þegar að tækjabúnaðurinn er kominn til landsins að fjármagna uppsetningu hans.? Minnt er á hér að ljósastýringar í Reykjavík eru ekki snjallljós heldur aðeins gamaldags klukkukerfi. Það eina sem skynjararnir gera er að breyta hvenær skipt er úr einu klukkukerfi í annað. Slaufuskynjararnir eru einnig gömul tækni sem hvorki greina né telja umferðina. Nútíma skynjarar eru ekki í gangi í Reykjavík, svo sem Radar, Innrauðir skynjarar og myndavélar. Kortið sem fylgir svarinu sýnir að allar helstu umferðaræðarnar í Reykjavík eru ekki með samstíga kerfi og öllu ægir saman. Sumt er tengt og annað ekki. T.d. er Miklabrautin ekki með samstíga kerfi. Svarið undirstrikar að að þetta er í raun verra en haldið var.