Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 325
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um að byggja skuli bráðabirgða göngubrú yfir Sæbraut, sbr. 25. liður fundargerðar umhverfis- og skipulagsráðs, dags. 2. október 2024. Einnig lögð fram umsögn skrifstofu samgangna og borgarhönnunar dags. 23. október 2024.
Svar

Tillögunni er vísað frá með vísan til umsagnar með fimm atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar og Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins greiða atkvæði gegn frávísun.
Fulltrúar Samfylkingarinnar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar leggja fram svohljóðandi bókun:
Verið er að undirbúa göngubrú á besta stað fyrir slíka brú. Miklu máli skiptir hvernig landið liggur sunnan gatnamótanna. Brúin styttir leiðir fótgangandi og fatlaðra vegfarenda, en þarna verður lyfta.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Í ljósi hörmulegs banaslyss sem varð við Sæbraut fyrir skemmstu lagði fulltrúi Flokks fólksins til að hefjast skuli handa strax við að byggja bráðabirgða göngubrú yfir Sæbraut við gatnamót við Skeiðarvog/Kleppsmýrarveg og einnig að komið verði nú þegar upp snjallstýrðum gangbrautarljósum sem les umferðarflæði, aðstæður og hreyfingar vegfarenda. Fram kemur í umsögn að verið sé að vinna í gerð tímabundinnar göngubrúar yfir Sæbraut sem mun gagnast íbúum Vogabyggðar. Af þessu svari má skilja að framkvæmdir standi nú þegar yfir og verktakar séu á staðnum við byggingu brúarinnar. Tímalína þarf að vera skýr t.d. hvenær eru verklok? Mikilvægt er að íbúar á svæðinu geti farið að ganga öruggum skrefum yfir þessa fjölförnu og hættulegu umferðaræð? Flokkur fólksins hefur ítrekað óskað eftir betrumbótum og að hraða máli vegna hættunnar þarna. Síðasta bókun Flokks fólksins var í janúar á þessu ári til að ítreka þetta mál. Huga þarf síðan að framtíðarlausn og að setja snjallstýrð gangbrautarljós.