Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um borgargarða, sbr. 29. liður fundargerðar borgarráðs, dags. 31. ágúst 2023. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu umhverfisgæða, dags. 22. október 2024.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fram kemur í umsögn að engar sérreglur gilda um borgargarða en hluti svæðanna nýtur hverfisverndar og eru á náttúruminjaskrá. Það sem skiptir máli varðandi borgargarða er það sem í þessum görðum er. Eins og kemur fram í umsögn er talað um borgargarða sem kjarnann í vefi göngu- og hjólreiðastíga innan borgarinnar. Það má taka það fram að margt hefur breyst til batnaðar á undanförnum árum á útivistarsvæðum en betur má ef duga skal. Til þess að borgarbúar geti notið borgargarða þurfa ákveðnir innviðir að vera í lagi. Gott aðgengi fyrir alla þarf að vera til staðar hvort sem fólk kemur hjólandi, gangandi eða keyrandi til þess að njóta útivistar í borgarlandinu. Borgargarða og önnur útivistarsvæði ber að vernda og hlúa að. Stundum hefur ekki verið tekið viðeigandi tillit til þessara mikilvægu útivistarsvæða í deiliskipulagi. Má þar nefna sem dæmi bókun frá Flokki fólksins frá 19. júní s.l. um fyrirhugað deiliskipulag borgarhluta 3. Hlíðar sem nær yfir þrjú hverfi. Þar er minnt á umsögn Umhverfisstofnunar að innan þessa svæðis er að finna merkilegar minjar og vinsæl útivistarsvæði sem mögulega gætu raskast vegna uppbyggingar. Það þarf því að vanda vel til verka varðandi hin dýrmætu útivistarsvæði borgarinnar hvort sem þau kallast borgargarðar eða ekki.