Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. september 2024 ásamt kæru nr. 95/2024, dags. 4. september 2024, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur dagsett 15. ágúst 2024 um að fella niður áfallnar dagsektir og aðhafast ekki frekar vegna óleyfisframkvæmdar að Grænlandsleið 25. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 9. október 2024. Einnig er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 19. nóvember 2024. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 15. ágúst 2024 um að fella niður áfallnar dagsektir og aðhafast ekki frekar vegna framkvæmda á þaki bílskúrs að Grænlandsleið 25.