Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. september 2024 ásamt kæru nr. 95/2024, dags. 4. september 2024, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkur dagsett 15. ágúst 2024 um að fella niður áfallnar dagsektir og aðhafast ekki frekar vegna óleyfisframkvæmdar að Grænlandsleið 25. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 9. október 2024.