Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 329
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 14. október 2024 ásamt kæru nr. 120/2024, dags. 11. október 2024, þar sem kærð er ákvörðun um útgáfu byggingarleyfis fyrir Haðarstíg 14, 101 Reykjavík. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 21. október 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 19. nóvember 2024. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að felld verði úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 4. júní 2024 um að samþykkja umsókn um leyfi til að hækka þak, byggja kvisti á báðum hliðum, lækka gólf í kjallara og grafa frá parhúsi nr. 14 við Haðarstíg.