Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 326
Annað
Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 3. september 2024 ásamt kæru nr. 94/2024, dags. 2. september 2024, þar sem umsögn skipulagsfulltrúa frá 20. ágúst sl. vegna framkvæmda við Hverafold 50 þar sem gamall skjólveggur var rifinn niður og endurbyggður. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 2. október 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 7. nóvember 2024. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 20. ágúst 2024 um að synja umsókn um byggingarleyfi fyrir skjólvegg á lóð nr. 50 við Hverafold. Að öðru leyti er kærumáli þessu vísað frá úrskurðarnefndinni.