Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 20. september 2024 ásamt kæru nr. 101/2024, dags. 19. september 2024, þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík að synja umsókn um að samþykkja íbúð 0001 að Grenimel 25. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 7. október 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. nóvember 2024. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kærenda um að felld verði úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 10. september 2024 um að synja umsókn um að fá samþykkta íbúð í kjallara að Grenimel 25 í Reykjavík.