Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 2. september 2024 ásamt kæru nr. 92/2024, dags. 30. ágúst 2024, þar sem kærð er ákvörðun um breytingu á deiliskipulagi lóðanna að Holtsgötu 10 og 12 og Brekkustígs 16. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 7. október 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 5. nóvember 2024. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur frá 2. apríl 2024 um að samþykkja deiliskipulag Holtsgötu nr. 10 og 12 og Brekkustígs nr. 16 í Reykjavík.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun borgarstjórnar Reykjavíkur frá 2. apríl 2024 um að samþykkja deiliskipulag Holtsgötu nr. 10 -12 og Brekkustígs nr. 16 í Reykjavík. Úrskurðurinn er áfellisdómur yfir vinnubrögðum meirihluta borgarstjórnar í þessu máli og ofurþéttingaráformum hans á þessum viðkvæma stað. Í úrskurði nefndarinnar segir að ekki verði séð að sett hafi verið fram sterk rök um hvernig hin nýja byggð samkvæmt nýju deiliskipulagi samræmist markmiðum borgarverndarstefnu. Er þá sérstaklega horft til þess að hið kærða deiliskipulag felur í sér að heimilt er að byggja allt að fimmtán íbúðir á lóðunum þremur en fyrir eru þar fimm íbúðir. Sé þarna um að ræða verulega aukningu byggingarmagns á umræddum lóðum, sem almennt hafi í för með sér breytingar á byggðamynstri og götumynd, sem ekki sé rökstutt hvernig samræmist markmiðum borgarverndarstefnu 8. Hið kærða skipulag felur í sér byggingu fjölbýlishúss í afar rótgrónu hverfi þar sem hluti götumyndar og byggingarlistar frá árdögum hverfisins hefur varðveist. Rétt væri að varðveita eldra byggðamynstur og hús á þessum gamla og viðkvæma reit. Um er að ræða of mikið byggingarmagn miðað við grunnflöt og heildaryfirbragð aðliggjandi byggðar. Æskilegt væri að yfirbragð og fjölbreytileiki Gamla Vesturbæjarins yrðu áfram ríkjandi á umræddum reit.