Síðast Vísað til borgarráðs á fundi fyrir 3 mánuðum síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 359
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram verklýsing skipulagsgerðar og drög að umhverfismati Hallar og nágrenni, frekari þróun íbúðabyggðar í Úlfarsárdal, fyrir aðalskipulag Reykjavíkur 2040, dags. október 2025. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins óska eftir að málinu sé frestað. Frestunartillaga felld með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn þremur atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Verklýsing staðfest með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Sósíalistaflokk Íslands og Vinstri grænna. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Svar

Vísað til borgarráðs.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks lýsa miklum áhyggjum af áformum borgarstjóra, sem staðfest voru í borgarráði í liðinni viku, um uppbyggingu allt að 4.000 íbúða á reit M22 í Úlfarsárdal. Reiturinn er 58,5 hektarar að stærð og almennt talinn rúma 2.000 íbúðir miðað við núverandi þéttleika í nærliggjandi byggð. Þá lýsa fulltrúarnir jafnframt áhyggjum af því að ekki verði tryggð nægilega góð félagsleg blöndun í hverfinu. Rannsóknir hafa ítrekað sýnt hvernig börn sem alast upp í félagslega aðskildum og tekjulægri hverfum búa ekki við jöfn tækifæri - þau reynast ólíklegri til að sækja sér æðri menntun, tekjumöguleikar þeirra til framtíðar reynast skertir og félagslegur hreyfanleiki minni. Skipulag sem þetta mun fyrirsjáanlega ýta undir stéttaskiptingu og takmarka tækifæri fólks til að bæta lífskjör sín. Fulltrúar Sjálfstæðisflokks hafa jafnframt áhyggjur af því hve lítil áhersla er lögð á séreignastefnu í húsnæðisáætlunum borgarinnar. Um 21% af húsnæðismarkaði eru nú leiguíbúðir en aðeins 8% leigjenda vilja vera á leigumarkaði. Sú áhersla borgaryfirvalda að auka hlut leiguíbúða í Reykjavík er því nokkuð sérkennileg. Telja fulltrúar Sjálfstæðisflokks mun æskilegra að leggja stóraukna áherslu á séreignarstefnu - enda séreign besta leiðin fyrir fjölskyldur að tryggja sér fjárhagslegt öryggi og stöðuga búsetu.
Fulltrúi Framsóknarflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Borgarfulltrúi Framsóknar undrast hvað skipulag Halla og nágrenni er keyrt áfram af miklum hraða enda er um að ræða afdrifaríka ákvörðun og mikilvægt að málið fái vandaða umfjöllun. Því er furðulegt að meirihlutinn skuli ekki verða við óskum minnihlutans um frestun málsins um viku.