Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála dags. 13. júní 2024 ásamt kæru nr. 62/2024, dags. 12. júní 2024 þar sem kærð er ákvörðun byggingarfulltrúa Reykjavíkurborgar að heimila að sett verði i stað steyptra svalahandriða glerhandrið og klæðningu a suðurhlið. dagsett 14. maí 2024. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 26. júní 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 12. ágúst 2024. Úrskurðarorð: Hafnað er ógildingu ákvörðunar byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 14. maí 2024 um að samþykkja byggingaráform vegna klæðningar á suðurhlið fjöleignarhússins að Rofabæ 43–47 og fyrir breyttri gerð svalahandriða.