Síðast tekið fyrir á fundi í gær.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 376
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. í mars 2026, vegna gerðar nýs deiliskipulags fyrir Ofanleiti 2. Lóðin liggur að íbúðabyggð, sunnan og vestan megin, Kringlureit norðan megin og samfélagsþjónustu eða Verzlunarskóla Íslands til austurs á lóð Ofanleiti 1. Markmiðið deiliskipulagsgerðar er að auka framboð íbúða með það að leiðarljósi að ný byggð falli vel að núverandi umhverfi. Auk þess er markmiðið að horfa í söguna, nýta innviði og byggja vistvænt húsnæði.
Svar

Samþykkt er að kynna lýsingu nýs deiliskipulags í samræmi við 1. og 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal umsagna um lýsinguna hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, Skipulagsstofnun, Minjastofnun Íslands, Borgarsögusafni, Veitum, Vegagerðinni, Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur og kynna hana fyrir almenningi.

103 Reykjavík
Landnúmer: 107427 → skrá.is
Hnitnúmer: 10025031
Deiliskipulag
Deiliskipulag Kringlunnar
Samþykkt 13.05.1986 · Deiliskipulag. Nýtt skipulag