Fossvogshverfi - Breyting á deiliskipulagi - Stjörnugróf 7-11 - Bjarkarás
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 987
31. október, 2024
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Landslags ehf. , dags. 21. júní 2024, um breytingu á deiliskipulagi Fossvogshverfis vegna lóðar Bjarkaráss að Stjörnugróf 9, lóð nr. 7-11 við Stjörnugróf. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur er færður til, stækkaður og hafður rúmur. Bætt er við byggingarheimildum fyrir kaffihúsi og pökkunaraðstöðu í tengslum við gróðurhúsið. Aðkoma verður að kaffi- og gróðurhúsi um innkeyrslu norðan megin hússins en einnig verður aðgengi fyrir gangandi og hjólandi að austanverðu um göngu- og hjólastíg, samkvæmt uppdr. Landslags ehf. , dags. 14. ágúst 2024. Tillagan var auglýst frá 12. september 2024 til og með 24. október 2024. Engar athugasemdir bárust.
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauki 2.3. við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauki 2.3. við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar og fundarsköp borgarstjórnar.