Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 16. október 2024 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. október 2024 þar sem sótt er um leyfi til að hækka þak, byggja kvisti, bæta við glugga á gafli og breyta innra skipulagi í einbýlishúsi á lóð nr. 24 við Heiðargerði. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju.
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.