Lögð fram umsókn
Landslags ehf.
, dags. 21. júní 2024, um breytingu á deiliskipulagi Fossvogshverfis vegna lóðar Bjarkaráss að Stjörnugróf 7-11. Í breytingunni sem lögð er til felst að byggingarreitur er færður til og stækkaður svo hægt sé að byggja nýtt og stærra gróðurhús austar á lóðinni og bæta við kaffihúsi. Aðkoma verður að kaffi- og gróðurhúsi um innkeyrslu norðan megin hússins en einnig verður aðgengi fyrir gangandi og hjólandi að austanverðu um göngu- og hjólastíg. Staðsetning bílastæða við byggingarreitinn er leiðbeinandi, samkvæmt uppdr.
Landslags ehf.
, dags. 21. júní 2024.
Vísað til meðferðar verkefnastjóra.Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1276/2023.