Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing umhverfis- og skipulagssviðs, dags. 29. maí 2024, vegna gerð deiliskipulags fyrir Borgarspítalareit. Skipulagssvæðið afmarkast af Háaleitisbraut til vesturs, suður jaðri Borgarspítalans til norðurs, núverandi íbúðabyggð við Markarveg og Kjarrvegar til suðurs og Álftalandi til austurs. Skipulagslýsing þessi nær til breytingar á gildandi deiliskipulagi Eyrarland. Staðgreinir 1.840, samþykkt í borgarráði 30. desember 1973. Breytingin felur í sér að deiliskipuleggja reitinn sunnan Borgarsjúkrahússins undir nýja íbúðabyggð með áherslu á fjölbreytta og spennandi byggð fyrir unga sem aldna sem tekur mið af staðháttum og umhverfi. Einnig er lagður fram tölvupóstur Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, f.h. íbúaráðs Háaleitis og Bústaða, dags. 26. júní 2024, um framlengingu á umsagnarfresti. Lýsingin var kynnt frá 13. júní 2024 til og með 1. október 2024. Umsagnir bárust.
Kynning á athugasemdum
Áheyrnarfulltrúi Sósíalistaflokks Íslands leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi sósíalista vill taka fram að það er algjört lykilatriði að sjúklingar á Borgarspítala fái að njóta gróins umhverfis sunnan við spítalann á meðan hann er enn í starfsemi. Að framkvæmdir og hávaði og streita sem þeim fylgja hefjist ekki á þessum reit upp við spítalann fyrr en starfsemin sé flutt á nýjan stað, nema það sé gert af mikilli nærgætni við sjúklinga sem dvelja á spítalanum.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Deiliskipuleggja á reitinn sunnan Borgarsjúkrahússins undir nýja íbúðabyggð og segir í gögnum að leggja eigi áherslu á fjölbreytta og spennandi byggð fyrir unga sem aldna. Fulltrúi Flokks fólksins vill sjá þarna fyrst og fremst kjarna fyrir eldri borgara enda nú þegar komin slík byggð sem reynst hefur vel. Þessi staðsetning hentar mjög vel fyrir íbúðabyggð fyrir eldra fólk sbr. það sem fyrir er á Sléttuvegi og nágrenni. Þarna gæti verið skemmtilegur lífsgæðakjarni fyrir eldri borgara. Öll svæði eiga vissulega að vera lífsgæðasvæði/-kjarnar. Flokkur fólksins lagði til árið 2021 að skipuleggja byggð fyrir eldra fólk víðsvegar í Reykjavík. Fjölmargir vilja einmitt að íbúðasvæði í borginni verði skipulögð þar sem sérstök áhersla er lögð á þjónustu við eldra fólk og þeirra þarfir. Þessi reitur sem hér um ræðir hentar vel þegar horft er til nærþjónustu og afþreyingarmöguleika.