Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 28. febrúar 2024 ásamt kæru nr. 23/2024, dags. 26. febrúar 2025, þar sem kærð er ákvörðun Reykjavíkurborgar að hafna beiðni kæranda að taka upp ákvörðun um veitingu byggingarleyfis sem veitt var Apartments og rooms ehf. 30. ágúst 2022 og varðar Hraunberg 4. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar, dags. 26. mars 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 3. maí 2024. Úrskurðarorð: Felld er úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík frá 6. febrúar 2024 um að hafna kröfu um að taka upp ákvörðun um samþykki byggingaráforma, dags. 9. nóvember 2021, vegna breytinga á annarri hæð fjöleignarhúss á lóð nr. 4 við Hraunberg. Að öðru leyti er kærumáli þessu vísað frá úrskurðarnefndinni.