Fyrirspurn
Fram fer kynning á vinningstillögu að hugmyndaleit fyrir Leirtjörn Vestur og stöðu deiliskipulagsvinnu.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúa Flokks fólksins líst vel á ef byggðin verður að stórum hluta fyrir eldra fólk með allri þeirri þjónustu sem eldra fólk þarfnast og langar að hafa nálægt sér. Fyrir liggja samningar um uppbyggingu lífsgæðakjarna, húsnæðisuppbyggingar fyrir eldri borgara með fjölbreyttu framboði af þjónustu í nærumhverfinu, meðal annars á þessu svæði. Ef lífsgæðakjarni verður þarna er ekki þörf á skólum og leikskólum. Gæta þarf einnig að samráði og fara snemma af stað í samtalið við nærliggjandi byggðar og þeim hugmyndir og möguleika sem eru um þróun þar. Bent er loks á að í nýjum hverfum er þörf á bílastæðum oft stórlega vanmetin og má nefna Þorpið í Gufunesi og mögulega mun skorta bílastæði í Keldnalandinu. Bílastæðahús inn í hverfum í stað bílastæða við heimilin og deilibílakerfi hefur ekki almennilega náð að virka hér enn sem komið er og þarf að horfa til þess þegar ný hverfi eru skipulögð. Hönnuðir þurfa að aðlaga sig að þörfum og óskum borgarbúa, þeirra sem þarna er ætlað að búa.