Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Teiknistofunnar Storð ehf.
, dags. 14. maí 2024, ásamt bréfi Hermanns Georgs Gunnlaugssonar, dags. 14. maí 2024, um breytingu á deiliskipulagi Grafarlækjar-Stekkjarmóa-Djúpadals vegna lóðarinnar nr. 2-4 við Grafarlæk. Í breytingunni sem lögð er til felst að koma fyrir byggingarreit fyrir vélageymslu Golfklúbbs Reykjavíkur og steypt hólf eða gryfjur fyrir efnislager, samkvæmt uppdr.
Teiknistofunnar Storð ehf.
, dags. 15. janúar 2025. Tillagan var auglýst frá 13. mars 2025 til og með 28. apríl 2025. Umsögn barst frá Minjastofnun Íslands, dags. 25. apríl 2025.
Vísað til umsagnar verkefnastjóra.