Lögð fram að nýju umsókn
Teiknistofunnar Storð ehf.
, dags. 14. maí 2024, ásamt bréfi Hermanns Georgs Gunnlaugssonar, dags. 14. maí 2024, um breytingu á deiliskipulagi Grafarlækjar-Stekkjarmóa-Djúpadals vegna lóðarinnar nr. 2-4 við Grafarlæk. Í breytingunni sem lögð er til felst að koma fyrir byggingarreit fyrir vélageymslu Golfklúbbs Reykjavíkur og og steypt hólf eða gryfjur fyrir efnislager, samkvæmt uppdr.
Teiknistofunnar Storð ehf.
, dags. 15. janúar 2025.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til afgreiðslu.
Vakin er athygli á því að áður en kemur til auglýsingar á breytingu á deiliskipulagi, þarf umsækjandi að greiða skv. gr. 7.5. í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu nr. 1381/2024.