Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 9 mánuðum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 333
Vísað til borgarráðs
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju umsókn Teiknistofunnar Storð ehf. , dags. 14. maí 2024, ásamt bréfi Hermanns Georgs Gunnlaugssonar, dags. 14. maí 2024, um breytingu á deiliskipulagi Grafarlækjar-Stekkjarmóa-Djúpadals vegna lóðarinnar nr. 2-4 við Grafarlæk. Í breytingunni sem lögð er til felst að koma fyrir byggingarreit fyrir vélageymslu Golfklúbbs Reykjavíkur og og steypt hólf eða gryfjur fyrir efnislager, samkvæmt uppdr. Teiknistofunnar Storð ehf. , dags. 15. janúar 2025. Lagt er til að tillagan verði afgreidd í auglýsingu.
Svar

Samþykkt að auglýsa framlagða tillögu, skv. 1. mgr. 41. gr. sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til borgarráðs.