Fyrirspurn
Að lokinni kynningu er lögð fram að nýju skipulagslýsing fyrir Sóleyjarima dags. í maí 2024. Um er að ræða deiliskipulagslýsingu vegna nýrrar íbúðabyggðar við Sóleyjarima. Viðfangsefnið er að deiliskipuleggja lóð þannig að unnt verði að koma fyrir íbúðabyggð með 65-96 íbúðum. Lýsingin var í kynningu frá 30. maí til og með 28. júní 2024. Eftirtaldir sendu athugasemdir/ábendingar/umsögn: Margrét Sigrún Grímsdóttir, dags. 30. maí 2024, Halldís Hrund Guðmundsdóttir, dags. 5. júní 2024, Umhverfisstofnun, dags. 7. júní 2024, Skipulagsstofnun, dags. 24. júní 2024, Minjastofnun Íslands, dags. 24. júní 2024, Lovísa Ósk Þrastardóttir, dags. 27. júní 2024, Rúna Sif Stefánsdóttir, dags. 27. júní 2024, Vignir Þór Sverrisson, dags. 27. júní 2024 og Haraldur Óskar Haraldsson, dags. 1. júlí 2024. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 4. júlí 2024 og er nú lagt fram að nýju.
Vísað til umhverfis- og skipulagsráðs til kynningar.