Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til þess að breyta innra skipulagi og fjölga notkunareiningum með því að skipta
notkunareiningu 0101 upp í þrjár; 0101, óráðstafað atvinnurými á 1. hæð, rými 0201, skrifstofurými
og 0203, skrifstofurými og til þess að bæta flóttaleiðir með því að koma fyrir stálsvölum á austurhlið
2. og 3. hæðar í verslunar og veitingahúsi á lóð nr. 11 við Laugaveg.
Erindi fylgir umsögn Minjastofnunar dags. 12. apríl 2024 og afrit af gildum aðaluppdrætti
samþykktum þann 5. október 2010